Það má segja að okkar fyrstu kynni af papillon hundum hafi verið þegar við Finnur Bjarki við fórum í helgarferð til Kaupmannahafnar árið 1995. Við fórum yfir til Svíþjóðar á Sunnudeginum að hitta systur mína og fjölskyldu hennar. Móðir hennar átti þá tvo papillon hunda sem við heilluðumst allveg af. Kátir líflegir og skemmtilegir fyrir utan það hvað þeir voru nú fallegir.
Þegar við komum heim fórum við strax að tala um að fá okkur papillon en það var ekki fyrr en nokkrum árum seinna að draumurinn rættist. Þá sá ég auglýsingu á papillon hvolpum, ég las þetta aftur og aftur til að vera viss og hringdi svo....... viti menn lílklega var ein tík eftir, fyrirferðamikil og fjörug sennilega svo fjörug að hún varð síðust úr gotinu til að fara að heiman. Þetta var Tópasar Down Town Lady eða Púsla eins og við köllum hana og erum alsæl með og spáðum svo sem ekkert í því á þeim tíma hvort að um væri að ræða góðan einstakling til sýninga eða undaneldis, það var ekki aðalmálið áþeim tíma heldur það að nú áttum við papillon sem var draumur að rætast.
Smátt og smátt fékk ég áhuga fyrir að sýna hana Púslu okkar á hundasýningum HRFÍ og gekk henni svona glimrandi vel varð Ísl. meistari á þremur sýningum og er með 2 CACIB. Boltinn fór að rúlla og ég fékk áhuga á meiru en sýningum og fór að leita af karlhundi og keypti Emira's Bobby James af Lene Kiilerich árið 2001 og fór endanlega í hundana. Pjakkur eins og hann er kallaður varð fyrir því óláni að fótbrotna stuttu eftir að hann kom úr Hrísey og hefur ekki verið mikill sýningahundur af þeim orsökum en hefur hlotið eitt Ísl. meistarastig. Púsla og Pjakkur hafa gefið af sér virkilega góð afkvæmi en betur má ef duga skal, í janúar 2005 bættust við tveir innfluttir hundar, DKCH og NUCH Toymakers Ladykiller og Jasion's Annie Get Your Gun frá Marianne Hansen.
Hvolparnir okkar eru afskaplega mannblendnir, félagslyndir og heilbrigðir og hafa skilað góðum árangri á sýningum sem er aðalmarkmið okkar ásamt því að bæta stofn þessara indælu og tegundar sem papillon er svo fleiri geti notið hennar. Framundan er skemmtilegur tími, papillon hundum hefur fjölgað til muna og verður gaman að fylgjast með framhaldinu.