Forsíða  -  Fréttir  -  Um Okkur  -  Mínir Hundar  -  Hvolpar :)  -  Gallery  -  Gestabók  -  Tenglar

Við hjá Aiming High ræktunn erum ekki með mörg got á ári, við höfum flutt inn hunda til að bæta Papillonræktun á Íslandi og erum við með góða hunda af heilbrigðum línum, bæði frá Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi.

Þeir hvolpar sem fæðast hjá okkur dvelja fyrstu vikur lífs síns í svefnherbergi hjá okkur til að bæði tík og hvolpar fái bestu ummönnun sem hægt er að veita þeim, tíkurnar vilja hafa einhvern hjá sér til halds og trausts fyrst um sinn.

Svo þegar hvolparnir eru farnir að braggast og stiga sín fyrstu skref flytja þeir inn í stofuna á heimilinu þar sem þeir kynnast því sem fer fram á flestum heimilum einnig fara þeir svo að fara út með stærri hundunum og læra margt af þeim.

Við gerum okkar besta til að finna okkar hvolpum góð heimili og hefur það gengið vel.

Til að geta framlengt okkar ræktun leitum við öðru hvoru eftir fóðurfjölskyldu, svona samningar eru víða notaðir erlendis og ganga mjög vel þar, hér á Íslandi þekkir fólk þetta kannski ekki mikið en ef báðir aðilar vita að hverju er gengið er þetta frábær kostur og hentar fólki kannski mjög vel.